top of page
Tvofold snúningshurd_edited.jpg

NEW YORK HURÐIR
 

Hurðirnar eru framleiddar úr dufthúðuðu áli í stöðluðum svörtum lit með mattri áferð (RAL 9005, gljástig 03), með samlímdu eða hertu öryggisgleri eftir aðstæðum.

SÉRSNIÐIÐ AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM

Sveigjanleiki er kjarninn í hönnun og framleiðslu New York kerfisins. Með einföldum hætti er hægt að aðlaga kerfið, liti og gler að  óskum hvers og eins.

 

Eftirfarandi 4 tegundir hurða eru í boði:

  • Snúningshurðir / Pivot

  • Rennihurðir

  • Fellirveggir

  • Hurðir á lömum

SNÚNINGSHURÐIR / PIVOT

Snúningshurðir er hægt að framleiða í stærðum allt að 4 m², sem gefur möguleika á að framleiða snúningshurðirnar frá gólfi og til lofts í flestum tilfellum. Snúningshurðirnar er hægt að tengja við glerveggi ef hentar. Snúningshurðirnar eru með 90° opnun í báðar áttir, 180°opnun.. Þær eru festar í gólf og loft með snúningslömum.

Hámarksflatarmál snúningshurða (breidd x hæð): 4 m². Hámarksbreidd snúningshurða: 1.400 mm.

Dæmi: Snúningshurð getur t.d. verið 650 mm x 6.000 mm., eða 1.400 mm x 2.500 mm. Svo lengi sem breidd fer ekki yfir 1.400 mm og heildarflatarmál ekki yfir 4 m² er mögulegt að sérsmíða hurðirnar í þeirri stærð sem óskar er eftir.

Snúningshurðir eru fáanlegar í þremur útfærslum:

Með 95 mm ramma
Með 50 mm ramma
Heil glerhurð með 35 mm álímdum gluggarömmum

Snúningshurðir eru afhentar með hurðarlokun/pumpu í gólfstykki. Einnig er hægt að sérpanta fjölbreyttan aukabúnað á borð við handföng, þrýstiplötur, faldar lokanir í lofti, rúlluskrár, læsingar o.fl. 

DYFA New York - Glass Partition with P1 Pivot Door.jpg
DYFA 2.jpg

RENNIHURÐIR

Rennihurðirnar eru framleiddar í sama stíl og aðrar hurðir frá DYFA og eru fáanlegar í álramma eða sem heilar glerhurðir með álímdum gluggarömmum.

Rennihurðir eru framleiddar með tvenns konar toppbrautum. Annars vegar eru þær fáanlegar með braut sem er innbyggð í loft sem gerir það að verkum að aðeins hurðarflekinn er sýnilegur. Hins vegar eru þær fáanlegar með sýnilegri braut sem veitir hurðinni grófara og meira afgerandi útlit sem minnir um margt á hlöðuhurð í sveitastíl.

Hámarksstærð rennihurða með 95 mm ramma: 1.200 mm x 2.400 mm ( breidd x hæð). Hámarksstærð annarra rennihurða: 1.100 mm x 2.400 mm (breidd x hæð).

Rennihurðir eru fáanlegar í sjö útfærslum:

Með 95 mm ramma
Með 95 mm ramma og sýnilegum brautum
Með 50 mm ramma
Með 50 mm ramma og sýnilegum brautum
Með topp- og botnramma
Með topp- og botnramma og sýnilegum brautum


Rennihurðir eru afhentar með földum toppbrautum, gólfbraut og án handfanga. Einnig er hægt að sérpanta fjölbreyttan aukabúnað á borð við hurðarhúna, mjúkri lokun, sýnilega toppbraut, rúlluskrár o.fl.

FELLIVEGGIR

Sveigjanlega felliveggjakerfið frá DYFA hentar vel til að stúka af eða skipta rýmum á borð við ráðstefnusali, fundarherbergi, kennslustofur, herbergi o.s.frv.

Felliveggur er frábrugðinn fellihurð að því leyti að hann býður upp á enn meiri sveigjanleika. Felliveggur er sjálfstæð eining sem er hengd upp eða fest í loft. Þar sem einingarnar eru afhentar hver í sínu lagi er mögulegt að raða þeim niður á þann hátt sem hentar hverju sinni.

Ólíkt fellihurðum eru felliveggir framleiddir með 10 mm öryggisgleri ásamt álímdum gluggarömmum. Með álímdum gluggarömmum er hægt að ráða stærð og ásýnd glereininganna og aðlaga að þörfum hverju sinni.

Felliveggir eru afhentir með loft- og gólfbrautum.
Auk þess er hægt að sérpanta veggina í ýmsum litum

10ad124e-3c93-43e0-bd96-12a0a93d0e83.jpg
Hurð a lomum.jpg

HURÐIR Á LÖMUM

Hurðir á lömum eru fáanlegar í tveimur útfærslum:

  • Hurðir í ramma

  • Heilar glerhurðir

​​

Hurðirnar opnast í 180° í aðra átt. Hurðir í ramma eru þær hurðir sem komast næst hefðbundnum innihurðum. Hurðirnar er hægt að setja upp í flest stöðluð hurðarop í stað hefðbundinna innihurða. Eigi að skipta út núverandi hurð þarf að skoða lamasetningu og slúttjárn með tilliti til þess.

Heilar glerhurðir eru afhentar í 35mm ramma, þeim nettasta sem er í boði. Þær eru gerðar úr heilu gleri með álumgjörð og álímdum gluggarömmum. Heilar glerhurðir eru annars vegar fáanlegar með 8 mm öryggisgleri og hins vegar með 10,76 mm hljóðeinangrandi gleri (vottuð hljóðdempun upp á 38 dB).

Hámarksstærð hurða á lömum: 1.100 mm x 2.400 mm (breidd x hæð).

Hurðir á lömum eru fáanlegar í þremur útfærslum og eru ýmist einfaldar eða tvöfaldar:

Í 95 mm ramma
Í 50 mm ramma
Heil glerhurð með 35 mm álímdum gluggarömmum.

Hurðir á lömum eru afhentar í álramma og tilbúnar til uppsetningar. Heilar glerhurðir eða hurðir í 95 mm ramma koma með stöðluðu láshúsi en hurðir í 50 mm ramma eru einungis fáanlegar með segullæsingu. 

bottom of page